Námskeiðið er hannað fyrir einstaklinga sem hafa gengist undir efnaskiptaaðgerð (stutt eða langt síðan) eða taka þyngdarstjórnunarlyf eins og Wegovy.  Markmiðið er að veita fræðslu, hvatningu og stuðning fyrir þig á þessari vegferð. 

Námskeið er 3 skipti, 1,5 – 2 klst í senn. Farið verður yfir helstu áherslur sem einstaklingar þurfa að tileinka sér hvort sem þú hefur farið í efnaskptaaðgerð og/eða notar þyngdarstjórnunarlyf. 

Við leggjum áherslu á að hér verði hægt að spjalla saman, deila reynslu og þekkingu að vild.

Bríet og Rut hjúkrunarfræðingar og Dagný næringarfræðingur ræða á þessu námskeiði um mataræði, hreyfingu og áskoranir sem því fylgja að hafa farið í efnaskiptaaðgerð og hvernig megi auka vellíðan og lífsgleði á þessari vegferð. 

Skráðu þig endilega á póstlistann, við sendum með góðum fyrirvara þegar næsta námskeið verður ákveðið. 

Upplýsingar um námskeiðið

  • Staðsetning:  Heima í stofu 🙂
  • Dagsetning:  Haust 2024.
  • Tímasetning: Kl. 19:30 – 21:00
  • Staðfestingargjald 5000,- (ekki endurgreitt)
  • Verð: 13900.- 
  • Leiðbeinendur: Bríet, Rut og Dagný

Skráning á námskeið

Deila:

Um okkur

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu. 

Fylgdu okkur

Fréttabréf

Ertu með spurningar?

Ekki hika við að senda okkur línu.