Námskeiðið hentar fyrir einstaklinga sem hafa gengist undir efnaskiptaaðgerð eða eru að taka þyngdarstjórnunarlyf eins og Wegovy. Markmiðið er að veita fræðslu, hvatningu og stuðning fyrir þig á þessari vegferð. 

Námskeið er 3 skipti, 1,5 -2 klst í senn. Farið verður yfir helstu áherslur sem einstaklingar þurfa að tileinka sér hvort sem þú hefur farið í efnaskptaaðgerð og/eða notar þyngdarstjórnunarlyf. 

Við leggjum áherslu á að hér verði hægt að spjalla saman, deila reynslu og þekkingu að vild.

Bríet og Rut hjúkrunarfræðingar á Klíníkinni ræða á þessu námskeiði um mataræði, hreyfingu og áskoranir sem því fylgja að hafa farið í efnaskiptaaðgerð/lyfjameðferð og hvernig megi auka vellíðan og lífsgleði á þessari vegferð. 

Upplýsingar um námskeiðið

  • Staðsetning:  Heima í stofu á Zoom.
  • Dagsetning:  10, 17 og 24 september 2024.
  • Tímasetning: Kl. 19:30 – 21:00.
  • Staðfestingargjald 5000,- (ekki endurgreitt).
  • Verð: 12900.- 
  • Leiðbeinendur: Bríet og Rut.

Skráning á námskeið

Deila:

Um okkur

Klíníkin Ármúla er nútíma læknamiðstöð þar sem sérfræðingar vinna saman að bættri heilsu þinni. Markmið okkar er að vera leiðandi í þróun á öruggri hágæða læknisþjónustu. 

Fréttabréf

Ertu með spurningar?

Ekki hika við að senda okkur línu.