Námskeiðið er hannað fyrir einstaklinga sem hafa nýlega gengist undir efnaskiptaaðgerð (fyrir meira en 6 mánuðum) og vilja rifja upp og vinna nánar með lífstílsbreytingarnar, fá stuðning og hvatningu í hóp auk þess að fá fræðslu um ýmislegt sem tengist þessum breytta lífsstíl.
Námskeið er 3 skipti, 1,5 – 2 klst í senn. Farið verður yfir helstu áherslur sem einstaklingar þurfa að tileinka sér eftir magaermi, mini-hjáveitu og/eða hefðbundna hjáveitu.
Við leggjum áherslu á að hér verði hægt að spjalla saman, deila reynslu og þekkingu að vild.
Bríet og Rut hjúkrunarfræðingar og Dagný næringarfræðingur ræða á þessu námskeiði um mataræði, hreyfingu og áskoranir sem því fylgja að hafa farið í efnaskiptaaðgerð og hvernig megi auka vellíðan og lífsgleði á þessari vegferð.
Upplýsingar um námskeiðið
- Staðsetning: Klíníkin, Ármúla 9, 108 Reykjavík
- Dagsetning: Þriðjudagana 7., 14. og 21. nóvember 2023
- Tímasetning: Kl. 17:00 – 18:30
- Staðfestingargjald 5000,- (ekki endurgreitt)
- Verð: 17900.-
- Leiðbeinendur: Bríet, Rut og Dagný