Af hverju þarf að passa sérstaklega upp á vöðvana?
Lyf sem virka á GLP-1 hormónakerfið, eins og Wegovy (semaglutide), hafa valdið byltingu í meðferð við offitu. Þau minnka svengd, bæta blóðsykurstjórnun og leiða oft til verulegs þyngdartaps. En nýjar rannsóknir sýna að þyngdartap með þessum lyfjum felur ekki aðeins í sér tap á fitu – heldur getur hluti þyngdartapsins einnig verið vöðvamassi. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að styðja og viðhalda vöðvastyrk á meðan meðferð stendur.
Af hverju dregur úr vöðvamassa við þyngdartap?
Allt þyngdartap, líka það sem næst með breyttu mataræði, felur í sér blöndu af fitutapi og vöðvatapi. GLP-1 lyfin geta hraðað þyngdartapinu jafnvel þó að ekki sé hugað að gæðum fæðunnar. Bágborið mataræði (næringarsnautt og próteinlítið) og lítil markviss hreyfing getur aukið á vöðvatapið enn frekar.
Rannsóknir benda til að:
Í stórum rannsóknum á semaglutide var allt að 25–40% af heildarþyngdartapi tengt fitulausum massa, þar með talið vöðvum.
Þyngdartap án viðnámsþjálfunar eða nægs próteins leiðir nánast alltaf til einhverrar rýrnunar í vöðvum.
Aldur spilar einnig stórt hlutverk: eftir 40 ára aldur tapar fólk eðlilega 0,5–1% vöðvamassa á ári og GLP-1 lyf geta hraðað þeirri þróun ef ekkert er að gert.
Hvernig hefur GLP-1 lyfjameðferð áhrif á vöðva?
GLP-1 lyf virka fyrst og fremst á blóðsykurstjórn, hungurtilfinningu og meltingarhraða, en ekki beint á vöðva. Áhrifin á vöðvamassa eru hins vegar óbein:
1. Minnkuð matarlyst og minni próteininntaka
Fólk borðar minna, stundum miklu minna. Það getur þýtt:
minni próteininntaka
minni orkuinntaka
minni örvun á vöðvauppbyggingu (protein synthesis)
2. Minni ávinningur af hreyfingu vegna minni orku
Sumum finnst orkan dvína, sem getur dregið úr hreyfingu og þannig minnkað hvata til vöðvauppbyggingar.
3. Hratt þyngdartap getur valdið hraðari niðurbroti á vöðvavef
Líkaminn sækir í próteinið sem byggir upp vöðvana ef próteininntaka og hvati til að byggja upp vöðva (s.s. hreyfingarleysi) eru ófullnægjandi.
4. Aldurstengd áhrif
Eldri einstaklingar eru viðkvæmari fyrir vöðvatapi (sarcopeniu), og GLP-1 lyf geta aukið þá áhættu.
Af hverju skiptir vöðvamassi svona miklu máli í meðferð með Wegovy?
Vöðvamassi hefur áhrif á nánast allt sem varðar heilsu, hreyfigetu og efnaskipti. Vöðvar:
hækka grunnbrennslu (BMR)
styðja við liðamót og hrygg
viðhalda stöðugleika og jafnvægi
draga úr fallhættu og meiðslum
styðja við blóðsykur og insúlínnæmi
auka lífsgæði
Ef vöðvar rýrna of mikið er hættan sú að:
grunnbrennsla lækkar og það verður auðveldara að þyngjast aftur
styrkur og snerpa minnkar
líkaminn verður viðkvæmari fyrir meiðslum
bati í kjölfar sjúkdóma/slysa verður erfiðari
Rannsóknir sýna að vöðvatap á meðan á lyfjameðferð stendur getur gert langtímaárangur verri, sérstaklega ef markmiðið er að halda þyngdinni niðri þegar lyfjameðferð hættir.
Hvernig ver maður vöðvamassann fyrir rýrnun?
1. Viðnámsæfingar 2–3x í viku
Rannsóknir sýna að viðnám er besta leiðin til að halda vöðvum.
Þarf ekki vera á líkamsræktarstöð — líkamsþyngd, teygjubönd og jóga með styrkáherslu virkar.
2. Prótein í hverri máltíð
Markmið:
1,0–1,2 g prótein á hvert kg líkamsþyngdar á dag
próteinríkar máltíðir (egg, baunir, skyr, fiskur, kjúklingur, tofu)
3. Næg orka
Ekki borða of lítið – líkaminn þarf orku til að byggja.
4. Regluleg mæling á líkamsamsetningu
Mikilvægt að mæla:
vöðvamassa
fituprósentu
vöðvagæði
5. Hreyfing sem eykur hreyfanleika og stöðugleika
Öll hreyfing telur hvort sem það er jóga, göngur eða styrktaræfingar, allt stuðlar að aukinni virkni vöðva.


