Lyfjameðferð á Klíníkinni

Lyfjameðferðir

Lyfjameðferð vegna ofþyngdar og offitu

Upplýsingar fyrir þá sem hafa áhuga á Wegovy lyfjameðferð við þyngdarstjórnun

Ef þú ert að velta fyrir þér lyfjameðferð til þyngdarstjórnunar, gæti Wegovy verið kostur fyrir þig. Þetta lyf, sem hefur fengið mikla athygli fyrir áhrif sín á þyngdartap, er ætlað einstaklingum sem eiga í erfiðleikum með að léttast með hefðbundnum aðferðum eins og mataræði og hreyfingu. Hins vegar eru ákveðin skilyrði sem þarf að uppfylla til að fá lyfinu ávísuðu.

Hverjir uppfylla skilyrðin til að fá Wegovy?

  1. Þyngdarstuðull (BMI): Wegovy er yfirleitt ávísað til einstaklinga með BMI yfir 30, sem telst offita, eða þeim með BMI yfir 27 sem eru með tengda fylgikvilla eins og háan blóðþrýsting, greindan kæfisvefn eða með blóðfituröskun. ATH ef þú fellur ekki undir þessi viðmiðunargildi fæst lyfinu ekki ávísað.

  2. Ábendingar um króníska ofþyngd eða offitu: Til að fá lyfinu ávísuðu þarf læknir að meta hvort þú glímir við langvarandi ofþyngd eða offitu sem ekki hefur tekist að stjórna með lífsstílsbreytingum. 

  3. Ástand sem krefst þyngdarstjórnunar: Ef ofþyngd þín er farin að hafa veruleg áhrif á heilsu þína, til dæmis ef þú ert með alvarlega þyngdartengda fylgikvilla, getur það verið hluti af ákvörðun læknis um að ávísa lyfinu.

Hvað er Wegovy?

Wegovy er lyf sem inniheldur semaglutide, sem er svipað og náttúrulegt hormón (GLP-1) sem stýrir matarlyst. Það dregur úr hungurtilfinningu, eykur mettunartilfinningu, og hjálpar þannig fólki að borða minna og léttast.

Hvernig virkar Wegovy?

Wegovy virkar með því að líkja eftir hormóninu GLP-1, sem líkaminn framleiðir venjulega eftir máltíðir. Þetta hormón:

  • Hægir á magatæmingu → maturinn er lengur í maganum og þú upplifir lengur seddutilfinningu. 

  • Minnkar löngun eftir mat → þörfin fyrir að borða minnkar og matarlöngun minnkar.

  • Styrkir mettunarboð → þú upplifir mettun fyrr og borðar sjálfkrafa minna.

Samspil þessara þátta leiðir til minni kaloríuinntöku og þar með þyngdartaps.

Hvað þarftu að hafa í huga?

Wegovy er langtímameðferð sem dregur úr hungri og eykur mettunarboð, hjálpar mörgum að ná 10–15% þyngdartapi og getur bætt heilsufar en getur valdið meltingaróþægindum og krefst reglulegrar notkunar; lyfið er ekki niðurgreitt (nema í undantekningartilfellum) og kostar oft um 25.000–50.000 kr. á mánuði. Mikilvægt að vita að GLP-1 lyf virka ekki fyrir alla. 

Er Wegovy langtímalausn?

Lyfjameðferð með Wegovy er yfirleitt hugsuð sem langtímameðferð. Rannsóknir sýna að þegar meðferðinni er hætt er hætta á að þyngdin aukist aftur. Því þarf að líta á lyfið sem hluta af heildstæðri nálgun í þyngdarstjórnun sem innifelur einnig breytingar á lífsstíl.

Er hægt að fá lyfið niðurgreitt?

Sjúkratryggingar Íslands taka aðeins þátt í kostnaði við lyfið í takmörkuðum tilfellum, til dæmis ef BMI er 45 eða hærra og fylgikvillar eru til staðar.

Er Wegovy rétt fyrir þig?

Ef þú ert að hugsa um að byrja á Wegovy er best að panta tíma hjá lækni til að meta hvort þú uppfyllir skilyrðin fyrir lyfjameðferðinni. Læknirinn mun skoða heilsufarslegar forsendur þínar og meta hvort Wegovy sé viðeigandi lausn fyrir þig.

Þarf ég eftirfylgd

Eftirfylgdarviðtöl eru hluti af þjónustunni sem veitt er á Klíníkinni. Við metum hvort þörf sé á blóðprufum, bjóðum upp á fullkomna mælingu á þyngdarbreytingum og styðjum við þig í þessari vegferð. Þú ert velkomin í viðtöl/mælingar þrátt fyrir að fá lyfinu ávísað frá öðrum læknum en þeim sem eru á Klíníkinni.

Lyfjameðferð með GLP-1 lyfjum – Ferlið og einstaklingsbundin nálgun

Að stilla af lyfjameðferð með GLP-1 lyfjum er einstaklingsbundið ferli sem krefst nákvæmrar eftirfylgni. Hér er yfirlit yfir hvernig meðferðin fer almennt fram:

  1. Fyrsta viðtal við lækni
    í upphafsviðtali metur læknir hvort GLP-1 lyfjameðferð henti þér. Ef ákvörðun er tekin um að hefja meðferð er lyfseðill gefinn með byrjunarstyrkleika lyfsins. Sá skammtur er yfirleitt lágur til að draga úr líkum á aukaverkunum. Á þessu stigi er markmiðið að kanna hvort líkaminn þolir lyfið án alvarlegra fylgikvilla.

  2. Viðtal hjá hjúkrunarfræðingi eftir 3-4 vikur
    Eftir 3–4 vikna notkun er boðað í viðtal hjá hjúkrunarfræðingi til að meta mögulega fylgikvilla og árangur meðferðar. Þar er einnig framkvæmd líkamsgreining sem mælir meðal annars þyngd og fituprósentu. Ef meðferðin gengur vel er lyfjaskammturinn hækkaður með næsta lyfseðli.

  3. Eftirfylgni næstu 2-3 mánuði
    Næstu 2-3 mánuði fylgja regluleg símtöl eða skilaboð í gegnum Heilsuveru frá hjúkrunarfræðingi þar sem fylgst er með virkni lyfsins og mögulegum aukaverkunum. Skammturinn er smám saman aukinn þar til náð er því styrkleikastigi sem hentar þér til lengri tíma.

  4. Langtímameðferð
    Þegar rétti skammturinn hefur verið fundinn er lyfseðill gefinn sem dugar í nokkra mánuði. Allir sem eru á lyfjameðferð með GLP-1 lyfjum þurfa að koma í mælingu með líkamsgreiningartæki að lágmarki tvisvar á ári til að meta árangur og fylgjast með heilsufarslegum breytingum.

  5. Áframhaldandi eftirfylgni
    Við ráðleggjum að regluleg eftirfylgni haldist í að minnsta kosti 2 ár. Langvarandi notkun GLP-1 lyfja getur mögulega valdið bætiefnaskorti og því er mikilvægt að fylgjast með slíkum þáttum frá upphafi. Heilbrigður lífsstíll, þar á meðal hollt mataræði og regluleg hreyfing, er lykilatriði til að hámarka árangur meðferðarinnar.

Algengar spurningar

Að fara í efnaskiptaaðgerð eða byrja að taka lyf við offitu er stór ákvörðun. Hér eru nokkrar algengar spurningar sem fólk spyr oft um:

Af hverju að velja Klíníkina?

Klíníkin hefur innan sinna raða sérfræðinga í fremstu röð á sviði lækninga auk þess að vera með fullkomnar skurðstofur og veita frammúrskarandi þjónustu við skjólstæðinga sína. Hjá okkur ertu alltaf í fyrsta sæti.

Ekki er mælt með að hætta töku lyfsins ef þú hefur náð góðum árangri í þyngdartapi. Hætta er á að þú þyngist smátt og smátt aftur. Hafir þú hins vegar ekki náð að léttast á lyfinu er óhætt að  hætta töku þess.  Það er mikilvægt að átta sig á því að offita er langvinnur sjúkdómur og meðferðin er líka ævilöng.

Já, það er mjög mikilvægt að hugað að bæði næringu, hreyfingu og andlegri heilsu þegar þú ert á lyfjameðferð við offitu. Það styður við meðferðina og eykur líkur á að þú náir betri árangri og líðan.

Algengar aukaverkanir geta verið þreyta, ógleði, niðurgangur, harðlífi, höfuðverkur og svimi. 

Árangur er breytilegur en rannsóknir hafa sýnt fram á að einstaklingar séu að meðaltali að léttast um 17% af heildar þyngdinni. Jafnvel þó þú léttist einungis um 5% getur það hafti mikil áhrif á líðan og suma fylgisjúkdóma offitu.

FAGMENNSKA

Skjólstæðingar og samstarfsfólk getur treyst á fagmennsku á öllum sviðum í Klíníkinni Ármúla.

HLÝLEIKI

​​Við sýnum skjólstæðingum og samstarfsfólki hlýleika í öllum okkar samskiptum.

ELDMÓÐUR

Við erum lausnamiðuð og jákvæð gagnvart viðskiptavinum og samstarfsfólki og sinnum okkar starfi af eldmóði.

TRAUST

Skjólstæðingar og starfsfólk getur treyst á þagmælsku og heiðarleika í öllum okkar samskiptum.

Upphafsviðtal við lækni

Læknir fer yfir eftirfarandi þætti áður en ákveðið er hvort lyfjagjöf geti hentað þér. 

Ertu með spurningu eða ábendingu?

Við gerum okkar besta til að svara öllum fyrirspurnum.