Efnaskiptaaðgerðir

Efnaskiptaaðgerðir

Þrjár tegundir efnaskiptaaðgerða

Á Klíníkinni eru framkvæmdar þrjár tegundir efnaskipta- / offituaðgerða sem allar eru framkvæmdar í svæfingu um kviðsjá. Í meðfylgjandi myndbandi fjallar Aðalsteinn Arnarson, skurðlæknir, ítarlega um aðgerðirnar en stutta lýsingu á hverri aðgerð er jafnframt að finna hér að neðan.

Algengi yfirþyngdar og offitu hefur aukist hratt á Íslandi og er nú stærsta ógnin við framtíðar heilsufar þjóðarinnar. Alþjóða heilbrigðisstofnunin skilgreinir offitu sem líkamsþyngdarstuðul (BMI: body mass index) >30 kg/m2 og alvarlega offitu þegar BMI er >35 kg/m2. Árið 2007 voru um 20% Íslendinga með BMI >30 kg/m2 eða um 60.000 einstaklingar. Áætla má að um fimmtungur þeirra sé með BMI>35 kg/m2 eða um 12.000 manns.

Á Klíníkinni bjóðum við upp á þverfaglega þjónustu fyrir einstaklinga í yfirþyngd. Í teyminu starfa skurðlæknir, hjúkrunarfræðingur og næringarfræðingur sem vinna náið þannig að þú getir náð sem bestum árangri.

Verið velkomin til okkar í Ármúlann þar sem teymið okkar hjálpar þér að ná árangri sem bætir lífið!

 

Allar aðgerðirnar eru framkvæmdar um kviðsjá.

Magaermi

Magaermi er orðin algengasta offituaðgerðin og hefur verið framkvæmd í yfir 10 ár. Árangurinn er heldur minni í samanburði við magahjáveituaðgerð en aðgerðin hefur samtímis vissa kosti.

Líkurnar á ákveðnum langtímafylgikvillum eru minni en við hefðbundna hjáveituaðgerð og má þar helst nefna hættuna á garnaflækju. Sjúklingar fá síður losun (dumping syndrome).

Við magaermi er 85-90% magans fjarlægður og eftir verður grannur „banana-formaður“ magi sem er innan við 100 ml að rúmmáli. Ekki er gerð nein tenging eða hjáveita á smágirni. Hættan á næringarskorti er því minni en við hjáveituaðgerðir.

Magahjáveita

Magahjáveituaðgerð hefur verið algengasta offituaðgerðin undanfarin ár. Yfir 20 ára reynsla er á þessari tegund offituaðgerða og nú er um helmingur allra slíkra aðgerða framkvæmdar á þennan hátt.

Í aðgerðinni er maganum skipt í tvo hluta, lítinn magapoka sem rúmar ekki nema um 20 ml (á stærð við golfkúlu). Mjógirni er síðan tengt upp á þennan magapoka og þar með er veitt fram hjá stærri hluta magans, skeifugörn og efsta hluta mjógirnis.

Ári eftir aðgerðina getur þú gert ráð fyrir því að stærstur hluti yfirþyngdarinnar sé horfinn. Til lengri tíma litið mátt þú gera ráð fyrir að losna við 65-75% yfirþyngdar.

Mini-hjáveita

Mini-hjáveita er eitt nýjasta afbrigði offituaðgerða. Árangur hennar á yfirþyngd og efnaskiptasjúkdóma eins og sykursýki af gerð 2 er sambærilegur við hefðbundna hjáveituaðgerð (gastric bypass).

Aðgerðin er einfaldari en hefðbundin hjáveituaðgerð og sem dæmi er einungis gerð ein tenging í stað tveggja.

Minni hætta er á ákveðnum tegundum fylgikvilla eins og losun (dumping) og garnaflækju.

Ári eftir aðgerðina getur þú gert ráð fyrir því að stærstur hluti yfirþyngdarinnar sé horfinn. Til lengri tíma litið mátt þú gera ráð fyrir að losna við 65-75% yfirþyngdar.

Aðgerðin læknar í mörgum tilvikum ýmsa fylgisjúkdóma offitunnar eins og sykursýki gerð 2, hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein og kemur í veg fyrir ótímabær dauðsföll. Eins eykur hún lífsgæðin verulega vegna minna álags á berandi liði og margir sjúklingar læknast af kæfisvefni.

Varanlegur árangur!

Til að tryggja varanlegan árangur er nauðsynlegt að breyta lífsstíl og mataræði. Eftir aðgerð er líklegt að þú þolir illa kolvetni og fituríkar máltíðir sem geta valdið losun (e. dumping). Þér líður betur á próteinríku fæði og grænmeti. Eftir þessa aðgerð eru áhrif áfengis meiri og misnotkun getur leitt til alkóhólisma. Fólki með alvarlega átröskun er almennt ekki ráðlagt að fara í offituaðgerð.

Samhliða þyngdartapi hefur magahjáveituaðgerð kraftmikil áhrif á heilsuna. Yfir helmingur sjúklinga með sykursýki gerð 2 læknast og getur hætt að nota sykursýkilyf. Aðgerðin hefur auk þess mjög jákvæð áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma, minnkar hættu á myndun margra tegunda krabbameins og fækkar snemmbærum dauðsföllum. Um 80% sjúklinga læknast af kæfisvefni. Konur sem hafa ekki getað eignast börn verða oft frjóar eftir aðgerðina. Mundu eftir getnaðarvörn!  Liðverkir minnka og almenn lífsgæði aukast.

Undirbúningur fyrir aðgerð

Við mælum eindregið með að þú undirbúir þig eins vel og þú getur bæði andlega og líkamlega fyrir aðgerðina. Offita er flókinn sjúkdómur sem getur þurft fjölþætta meðferð til þess að þú náir sem bestum árangri til lengri tíma. Það er gott að byrja að undirbúa sig með nokkrum einföldum en  mikilvægum lífsstílsbreytingum. Að auki er mikilvægt að hugsa vel um andlega heilsu og leita sér viðeigandi aðstoðar ef þurfa þykir. 

Helstu leiðbeiningar um mataræði eftir efnaskiptaaðgerð

Algengar spurningar

Langflestir eru að léttast um 50 - 70% af yfirþyngdinni innan 1 - 2 ja ára frá aðgerð. Yfirleitt er meiri árangur af hjáveituaðgerðum en magaermi.

Flestir upplifa mikið þyngdartap, þeir sem eru með sykursýki II geta fengið eðlileg blóðsykursgildi að nýju, sumir geta hætt á blóðþrýstingslyfjum og margir upplifa að kæfisvefn lagast. Fyrir marga bætast við bæði ár við lífið og líf við árin.

 

Það kemur mörgum á óvart hversu fljótt þú jafnar þig eftir aðgerð. Flestir eru orðnir verkjalausir á 3ja degi eftir aðgerð. Þú þarft að vera a fljótandi fæði í 2 vikur eftir aðgerð og það getur verið fínt að taka veikindadaga í 2 - 4 vikur á meðan þú ert að læra á sjáfa/n þig og næringuna eftir aðgerðina. Allir fá 4 vikna veikindavottorð.

Já, það er mikilvægt að skilja að við aðgerðina kemstu á nýjan núllpunkt og til þess að viðhalda þyngdarbreytingunum er nauðsynlegt að tileinka sér bættar lífsvenjur bæði hvað varðar mataræði og hreyfingu. Mælt er með að draga úr neyslu á unnum matvörum, matvörum með háu fitu og/eða sykurinnihaldi. Auk þess er mjög mikilvægt að læra að borða reglulega.

Áður en þú kemur í aðgerð

Ef læknirinn hefur metið að aðgerð geti hentað þér er ferlið eftirfarandi:

Ertu með spurningu eða ábendingu?

Við gerum okkar besta til að svara öllum fyrirspurnum.

 

Val á aðgerð